Forsíða
Höfundar
Fræðilegur bakgrunnur
Flokkun íslenskra starfslýsinga
Framkvæmd
Bendill-námskeið
Verðskrá
Styrktaraðilar
Spurt og svarað
Athugasemdir
  Flokkun íslenskra starfslýsinga  
 

 

 

 

 

 

 

 

 

Flokkun íslenskra starfslýsinga samkvæmt kenningu Hollands

Verkefni styrkt af Starfsmenntaráði unnið í samvinnu við Samtök iðnaðarins

Ágrip

Í náms- og starfsráðgjöf hefur sú hugmyndafræði verið ríkjandi að einstaklingur verði ánægður og sýni árangur í starfi ef hann finnur starfsvettvang sem hæfir áhugasviði hans. Meginverkefni þess sem stendur frammi fyrir náms- og starfsvali felst í því að para sjálfan sig við starfsvettvang þar sem eiginleikar hans njóta sín (Brown og Brooks, 1996). Starfsáhugi hefur leikið lykilhlutverk í námsráðgjöf og hefur kenning Hollands (1997) um að skipta megi starfsáhuga í sex svið verið ráðandi í áhugasviðsmati. Áhugasviðskannanir af því tagi hafa töluvert verið notaðar við náms- og starfsráðgjöf hérlendis. Hins vegar hafa ráðþegar ekki haft greiðan aðgang að gagnlegum upplýsingum um íslenskan vinnumarkað og eðli starfa sem auðveldlega má para við áhugasviðin. Hérlendis eru til um 300 útgefnar starfslýsingar. Til að þær gagnist sem best við leit að námi og störfum er mjög mikilvægt að þær séu flokkaðar eða kóðaðar samkvæmt kenningu Hollands og gerðar aðgengilegar á netinu. Meginmarkmiðið með þessu verkefni er að Holland kóða íslenskar starfslýsingar og gera þær aðgengilegar á netinu. Flokkaður gagnagrunnur sem inniheldur starflýsingar mun gagnast fólki á öllum aldri sem stendur frammi fyrir náms- og starfsvali.

Markmið

Samkvæmt kenningu Hollands, sem er ráðandi í rannsóknum og hagnýtingu á sviði náms og starfsvals (Savickas og Spokane, 1999), má flokka starfsáhuga í sex áhugasvið. Áhugasvið þessi eru Realistic, Investigative, Artistic, Social, Enterprising og Conventional, einu nafni nefnd RIASEC. Einnig má flokka starfsumhverfi á sama hátt til að auðvelda fólki að finna samsvörun milli áhuga og starfa. Í Bandaríkjunum hefur það tíðkast að gefnar séu út starfslýsingar sem flokkaðar eru samkvæmt RIASEC kerfi Hollands (Gottfredson og Holland, 1996; Rounds og fél.1999). Hingað til hefur skort mjög á að til séu samsvarandi flokkun á íslenskum störfum sem nýst getur ráðþegum sem fengið hafa niðurstöður úr áhugasviðsmati til kerfisbundinnar leitar á náms- og starfsmöguleikum. Skortur á slíku kerfi hefur neikvæð áhrif á störf náms- og starfsráðgjafa og möguleika fólks til skipulagðrar leitar og ígrundaðrar ákvarðanatöku á þessu sviði. Markmið þessa verkefnis er að RIASEC kóða þær starflýsingar sem gefnar hafa verið út hérlendis og skipuleggja gagnagnrunn um störf samkvæmt kerfi Hollands. Slíkur gagnagrunnur yrði aðgengilegur á netinu og myndi bæta úr brýnni þörf fyrir aðgengilegar upplýsingar um störf hérlendis.

Hverskonar náms og kennslugögn

Ætlunin er að þróa flokkaðan gagnagrunn sem inniheldur þær 300 starfslýsingar sem þegar hafa verið gefnar út hérlendis bæði á vef Samtaka iðnaðarins ( www.idan.is ) og í þremur bókum eftir Gerði G. Óskarsdóttur (1990;1996; 2001). Starfslýsingar fela í sér mikilvægar upplýsingar um eðli starfa. Þar eru nauðsynlegar upplýsingar fyrir þá sem standa frammi fyrir vali á starfsvettvangi. Þannig getur ráðþegi sem fengið hefur niðurstöður úr áhugasviðsmati (áhugi hans fellur t.d. á SIA svið Hollands) farið í gagnagrunninn og kallað fram allar starfslýsingar sem falla að hans áhugasviðum (t.d. SIA eða svipaðar SAI). Slíkur gagnagrunnur myndi gera val fólks á námi og störfum mun skilvirkara og auka möguleika á að samsvörun náist milli áhugasviða og starfsvettvangs.

Hverjum eru gögnin ætluð

Flokkaðar starfslýsingar nýtast fyrst og fremst öllum þeim sem standa frammi fyrir því að taka ákvörðun um starfsvettvang. Val á námi og störfum er ein mikilvægasta ákvörðun sem einstaklingar þurfa að taka á ævinni.Gagnagrunnur sem inniheldur RIASEC kóðaðar starfslýsingar nýtist fyrst og fremst námsráðgjöfum og ráðþegum þeirra sem stuðningstæki við leit að starfsvettvangi við hæfi. En hann getur einnig komið þeim að góðum notum sem kjósa að kanna starfsmöguleika sína sjálfir.

Fyrningartími: Mismunandi eftir störfum-þarfnast reglulegrar endurskoðunar og viðhalds, einnig er mikilvægt að bæta við fleiri starfslýsingum.

Nýst öðrum

RIASEC flokkaður gagnagrunnur með starfslýsingum gagnast einnig atvinnulífinu því hann eykur líkur á að fólk velji sér störf við hæfi og verði ánægt og nái árangri í störfum.

Atvinnurekendur og stjórnendur fyrirtækja geta einnig nýtt gagnagrunn af þessu tagi við starfsmannastjórnun þar sem áhersla er lögð á mannauð og ánægju starfsmanna.

Síðast en ekki síst eru notkunarmöguleikar slíks gagnagrunns við rannsókna á sviði náms og starfsvals hérlendis óþrjótandi.

Staðsetning

Upplýsingakerfi sem inniheldur starfslýsingar sem flokkaðar eru samkvæmt kerfi Hollands verður staðsett á vefnum. Holland flokkunin mun virka sem hrein viðbót við idan.is, upplýsingakerfi Samtaka atvinnulífsins um störf. Viðræður eru yfirstandandi milli samstarfsaðila verkefnisins og eiginda annarra starfslýsinga sem til eru hérlendis um hvar best sé að hýsa og reka heildstæðan Holland kóðaðan gagnagrunn sem inniheldur allar útgefnar starfslýsingar sem til eru.

Annað

Vinnumálastofnun Bandaríkjanna hefur þróað alhliða upplýsinga og matskerfi fyrir fólk sem stendur frammi fyrir starfsvali (O*NET: www.onetcenter.org). Í þessu verkefni sem hér er sótt um styrk fyrir felst mikill vaxtabroddur þar sem kerfi það sem hér yrði komið á laggirnar gæti með tíð og tíma innihaldið fjölbreyttar upplýsingar um störf t.d. atvinnuhorfur og kjör og einnig mætti tengja það öðrum upplýsingakerfum m.a. um námsleiðir og færnikröfur starfa.

Heimildir

Brown, D., & Brooks, L. (1996). Career choice and development (3rd ed.). SanFrancisco: Jossey-Bass.
Gerður G. Óskarsdóttir (1990). Starfslýsingar, sérfræði, tækni og stjórnuarstörf. Reykjavik: Iðunn
Gerður G. Óskarsdóttir (1996). Sérgreinar í iðnaði og þjónustu. Reykjavik: Iðunn.
Gerður G. Óskarsdóttir (2001). Starfslýsingar III. Reykjavík: Iðunn.
Gottfredson, G. D. og Holland, J. L. (1996). Dictionary of Holland occupational codes. Odessa, FL:
Psychological Assessment Resources.
Holland, J. L. (1997). Making vocational choices: A theory of vocational personalities and work
environments (3rd. Ed.). Engewood Cliffs NJ. Prentice Hall.
Rounds, J., Smith, T., Hubert, L., Lewis, P., og Rivkin, D. (1999). Development of Occupational
Interest Profiles for O*NET. North Carolina: National Center for O*Net Development.
Savickas, L. M. & Spokane, A. R. (ritstj). (1999). Vocational interests: Meaning measurement and
counseling use. Palo Alto, CA: Davis-Black.

 

 
  Höfundar: © Sif Einarsdóttir (sif@hi.is) og James Rounds | Hönnuður vefs: © Manfred Lemke og Árni Björgvinsson | Grafík: © Svala Jónsdóttir | Síðast breytt 21.06.2011 
  Könnunina má ekki nota eða afrita að hluta eða í heild nema með leyfi höfunda.
  Þjónusta: Námsmatsstofnun