Forsíða
Höfundar
Fræðilegur bakgrunnur
Flokkun íslenskra starfslýsinga
Framkvæmd
Bendill-námskeið
Verðskrá
Styrktaraðilar
Spurt og svarað
Athugasemdir
  Framkvæmd  
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við gerð áhugakönnunar fyrir grunn- og framhaldsskólanema þarf að byrja á því að leggja svokallaða þróunarútgáfu af könnuninni fyrir úrtak nemenda. Þróunarútgáfan samanstendur af fjölda atriða sem endurspegla íslenskan vinnumarkað og námsframboði í framhaldsskólunum. Ákveðið var að nota þrjár tegundir af atriðum þ.e. starfsheiti, athafnir tengdar störfum og námskeiðsheiti úr framhaldsskólunum. Þróunarútgáfan sem samanstóð af 133 athöfnum og 125 námskeiðsheitum var lögð fyrir rúmlega 1000 10. bekkinga og sömu 133 athafnirnar og 125 starfsheiti voru lögð fyrir um 1000 framhaldsskólanema. Þeir voru beðnir að meta hversu vel eða illa þeim líkar störfin, námsgreinarnar og athafnirnar. Gagnasöfnun fór fram vorið 2004 með vefkönnun á netinu og sáu námsráðgjafar eða stjórnendur í þeim skólum sem lentu í úrtakinu um fyrirlögn. Gagnasöfnunin tókst með eindæmum vel og þökkum við nemendum og öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn kærlega fyrir samstarfið.


Síðustu misseri hefur verið unnið úr þessum gögnum og hafa þau nýst mjög vel við þróun kvarða og val atriða í lokagerð könnunarinnar. Stefnt er að því að til verði tvær útgáfur af könnuninn, önnur fyrir 10. bekkinga og hin ætluð framhaldsskólanemum. Lokaútgáfa af könnuninni verður að lögð fyrir stöðlunarúrtak framhaldsskólanema haustið 2005 og stöðlunarúrtak grunnskólanema snemma vors árið 2006.

 

3. okt. 2005 Seinni hluti gagnasöfnunar
Stefnt er að því að hefja gagnasöfnun í framhaldsskólum í október og í grunnskólunum í febrúar. Verið er að leggja lokahönd á þróun kvarða fyrir framhaldsskólanema og þegar því er lokið verður endanleg útgáfa áhugakönnunarinnar lögð fyrir stöðlunarúrtak. Ef allt gengur að óskum er áætlað að könnunin verði tilbúin til notkunar vorið 2006.
 

1. sept. 2005
Upplýsingakerfi með íslenskum starfslýsingum sem flokkaðar eru eftir áhugasviðskerfi Hollands hefur verið opnað. Kerfið inniheldur aðallega starfslýsingar sem gefnar hafa verið út í þremur bókum sem ritstýrt var af Gerði G. Óskarsdóttur auk lýsinga sem áður hafa verið birtar á Iðunni vef Samtaka Iðnaðarins. Mikilvægt er að þeir sem hyggjast nota kerfið við ráðgjöf kynni sér áður kosti þess og galla. Um þróun kerfisins, áreiðanleika og réttmæti flokkunarinnar er fjallað um í grein eftir Sif Einarsdóttur sem ber heitið "Læknir, lögfræðingur eða prestur? Flokkun íslenskra starslýsinga samkvæmt kenningu Hollands um starfsáhuga", sem birt hefur verið í Netlu veftímariti Kennaraháskóla Íslands. Allar athugasemdir og ábendingar um reynslu af notkun kerfisins eru vel þegnar. sif@hi.is 

 

 

 
  Höfundar: © Sif Einarsdóttir (sif@hi.is) og James Rounds | Hönnuður vefs: © Manfred Lemke og Árni Björgvinsson | Grafík: © Svala Jónsdóttir | Síðast breytt 21.06.2011 
  Könnunina má ekki nota eða afrita að hluta eða í heild nema með leyfi höfunda.
  Þjónusta: Námsmatsstofnun