|
BENDILL
Rafræn áhugakönnun.
Síðastliðin fjögur ár hefur staðið yfir vinna við gerð
rafrænnar áhugakönnunar sem nemendur í grunn- og framhaldsskólum
og námsráðgjafar sem aðstoða þá geta nýtt sér við leit og val á
námi og störfum. Nú stendur 10. bekkingum til boða að taka
Bendil-I og framhaldsskólanemum Bendil-II. Einnig stendur yfir
þróun rafrænnar áhugakönnunar fyrir háskólanema og fólk á
vinnumarkaði. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um verkefnið,
forsendur þess, tilgang og markmið. Verkefnið er styrkt af
RANNÍS og
Starfsmenntaráði Félagsmálaráðuneytisins. Verkefnisstjóri er
Sif Einarsdóttir, dósent við
Háskóla Íslands.
Efnisyfirtlit
Áhugakönnun, hvað er það?
Hvaða gagn
gera áhugakannanir?
Hvernig á að lesa úr niðurstöðum úr áhugakönnunum
Áhugasvið, hvað er átt við?
Sex
áhugasvið Hollands (HVLFAS/FASHVL)
Hvernig gagnast áhugasviðsmat við leit að námi og störfum?
Hvað standa kvarðarnir í Bendli 3 fyrir?
Áhugakönnun, hvað er það?
Þegar ungt fólk og aðrir sem standa frammi fyrir því að velja
nám eða starfssvettvang, getur verið gagnlegt að taka
áhugakönnun sem metur á hvaða sviðum starfsáhugi fólks
liggur. Áhugakannanir eru þannig byggðar upp að svara þarf
spurningum um hversu vel eða illa fólki líka athafnir
tengdar störfum (t.d. mála hús að utan), námsgreinar (t.d.
líffræði) og störf (t.d. grunnskólakennari). Áhugakönnunin
Bendill er rafræn og samanstendur af um 2-300 slíkum atriðum sem
endurspegla íslenskan vinnumarkað og það námsframboð sem
nemendur standa frammi fyrir í framhaldsskóla. Þegar búið er að
svara öllum spurningunum err unnið úr svörunum og niðurstöður um
hvar áhugasvið nemandans liggur eru tilbúnar um leið og hann
hefur svarað öllum spurningunum.
til baka
Hvaða gagn
gera áhugakannanir?
Ráðgjöf um náms og starfsval byggir á þeirri hugmyndafræði að
hverjum og einum sé nauðsynlegt að þekkja eigin áhugasvið,
færni og gildismat til að geta valið nám og
starfsvettvang við hæfi. Ef samræmi næst milli þessara eiginleika
einstaklingsins og starfsumhverfis er líklegra að hann verði ánægður
og sýni árangur í starfi. Áhugakannanir hafa verið notaðar í næstum
heila öld við að meta starfsáhuga fólks og hafa þær leikið
lykilhlutverk í ráðgjöf um náms- og starfsval. Áhugakannanir eru
þannig fyrst og fremst notaðar til að koma skipulagi á áhugasvið
nemandans og auka þannig sjálfsþekkingu hans. Niðurstöður
áhugasviðsmats koma nemendum af stað við frekari könnun á námsleiðum
og mögulegum starfsvettvangi. Færni er formlega metin í skólanum og
einnig eru til matstæki fyrir nemendur til að átta sig betur á eigin
gildismati þ.e. hvað skiptir þá mestu máli í lífinu.
til baka
Hvernig
á að lesa úr niðurstöðum úr áhugakönnunum
Bendill-I
sýnir á hverju af sex áhugasviðum Hollands þ.e. handverks-,
vísinda- lista-, félags-, athafna- og skipulagssviði
starfsáhuginn liggur helst (sjá mynd og nánari lýsingu á
áhugasviðunum neðar).
Könnunin gefur upplýsingar
um á hverju/m þessara sex meginsviða áhugi þinn liggur.
Niðurstöður þínar eru bornar saman við áhuga nemenda í 10. bekk.
Niðurstöðurnar birtast sem tölur á bilinu 20-80 og er meðaltalið
50. Á þeim sviðum sem eru rauð er áhugi þinn yfir
meðaltali (yfir 60). Ef sviðið er gult er áhugi þinn
í meðaltali (40-60) en ef það er grátt er áhugi
þinn á sviðinu undir meðaltali (undir 40).
Best er að skoða fyrst hvort þú fáir rautt á einhverju sviðanna
eða hvar þú hefur hæstu töluna ef svo er ekki. Heiti námsbrauta
sem falla undir hvert áhugasviðanna sex og í boði eru í
framhaldsskólum landsins birtast við hvert svið.
Bendill- I: Niðurstöðublað.
Nemandi sem er hæstur á handverksviði og næst hæstur á
skipulagssviði og síðan vísindasviði

Bendill-II
sýnir á hverju af sex áhugasviðum Hollands þ.e. handverks-,
vísinda- lista-, félags-, athafna- og skipulagssviði
starfsáhuginn liggur helst. (sjá sjá nánari lýsingu og mynd
neðar).
Niðurstöður þínar eru bornar saman við áhuga nemenda í
framhaldsskóla (18 ára og eldri fyrir háskólanema og vinnandi
fólk sem tóku þátt í rannsókn). Niðurstöðurnar birtast sem tölur
á bilinu 20-80 og er meðaltalið 50. Á þeim sviðum sem eru
rauð er áhugi þinn yfir meðaltali (yfir 60). Ef
sviðið er gult er áhugi þinn í meðaltali (40-60)
en ef það er grátt er áhugi þinn á sviðinu undir
meðaltali (undir 40).
Best er að skoða fyrst hvort þú fáir rautt á einhverju sviðanna
eða hvar þú hefur hæstu töluna ef ekkert sviðanna er rautt
skaltu skoða hvaða svið gefur hæstu töluna Auk áhugasviðanna
sex er starfsáhugi brotinn niður í 28 undirsvið t.d. tölvur,
opinber stjórnun eða félagsvísindi. Myndin sýnir hvernig hvert
svið tengist megin áhugasviðunum sex t.d. er handverkssvið
brotið niður í verk-tæknifræði, ræktun og búskap, sjávarútveg,
raf- og byggingargreinar vélar og akstur. (nánari lýsingu á
hverju sviði er að finna neðar).
Bendill- II: Niðurstöðublað.
Þátttakandi sem er hæstur á listasviði og næst hæstur á
félagssviði og hár á undirsviðunum: sjónlistum, tísku og hönnun,
og tölvum

Áhugasvið,
hvað er átt við?
Kenning Bandaríkjamannsins John L. Hollands um flokkun og
formgerð starfsáhuga hefur verið ríkjandi í áhugasviðsmati og
rannsóknum á starfsáhuga síðastliðin 30 ár. Holland flokkar
starfsáhuga í sex meginsvið og lýsir tengslum þeirra með því að
staðsetja þau á hornum sexhyrnings eða hring eins og við höfum
kosið að nota í Bendli (sjá mynd neðar). Nemandi sem tekur
áhugasviðskönnun fær upplýsingar um hver þessara áhugasviða lýsa
áhuga hans/hennar best. Starfsáhugi hvers einstaklings getur
verið misjafnlega þröngur eða víður og áhugi sumra fellur aðeins
á eitt svið (t.d. handverk) en annarra að mörgum; oft þremur (
t.d. fræða-, lista- og félagssviðs). Algengast er að áhugi fólks
falli að nokkrum sviðum sem liggja saman á sexhyrningi Hollands
(t.d. félags- og athafnasvið frekar en handverks- og
félagssviðs). Einnig hafa komið fram hugmyndir um að
starfsáhugi liggi aðallega á pólum tveggja vídda og fólk hafi
annaðhvort áhuga á að vinna með hluti eða fólk og
hugmyndir eða gögn. Þessar hugmyndir samræmast vel kenningu
Hollands en lýsa starfsáhuga á enn einfaldari hátt en
sexhyrningurinn (sjá mynd).
Kenning Hollands og tvívíddarlíkan um starfsáhuga

til baka
Sex
áhugasvið Hollands
H-Handverkssvið
Þetta svið lýsir þeim sem líkar vel að að vinna með höndunum og
beita alls kyns verkfærum, tækjum og tólum. Flest líkamleg störf
höfða til þeirra auk starfa sem unnin eru utandyra. Þeim líkar að
vera í ævinýralegu umhverfi og útistörf og útivist hvers konar
höfðar gjarnan til þeirra.
V-Vísindasvið
Þeir sem falla á þetta áhugasvið hafa gaman af því að leysa vandamál
með vísindalegum aðferðum, útreikningum og rannsóknum og beita
rökhugsun. Þeir vilja vinna sjálfstætt og í störfum sem krefjast
mikillar einbeitingar. Þeir hafa fjölþætt áhugamál og eru gjarnan
opnir fyrir nýjum hugmyndum og reynslu.
Þeir sem falla á þetta svið hafa mestan áhuga á að vinna að sköpun
og tjáningu. Þeim finnst oft mikilvægara að tjá tilfinningar sínar
heldur en að nota rökhugsun og kjósa gjarnan að vinna sjálfstætt og
vera frumlegir. Þessir einstaklingar fara gjarnan óhefðbundnar
leiðir í lífinu og eru opnir fyrir nýjum hugmyndum og reynslu.
F-
Félagssvið
Fólk á þessu sviði velur sér störf sem fela í sér mannleg samskipti.
Þeir hafa áhuga á að hjálpa öðrum, leiðbeina eða kenna. Samvinna,
skipting ábyrgðar og sveigjanleiki í samskiptum skiptir þá helst
máli í starfi. Þeir leggja áherslu á að leysa málin með því að ræða
þau út frá tilfinningum og samskiptum við aðra.
Þeir sem falla á þetta svið hafa áhuga á að ná fram ákveðnum
markmiðum, persónulegum eða efnahagslegum. Þeir vilja vinna með
öðrum en hafa mestan áhuga á að stjórna og hafa áhrif. Þeir eru
gjarnan í viðskiptum, stjórnmálum og í stjórnunarstörfum og vilja
vera virkir í athafnalífi. Þeir eru oft tilbúnir til að taka áhættu
í starfi og eru miklir keppnismenn.
S-Skipulagssvið
Þetta svið lýsir þeim sem vilja hafa gott skipulag á sinni vinnu.
Þeir vilja vinna við skýrt afmörkuð verkefni þar sem hægt er að
leita skynsamlegra og hagnýtra lausna á vandamálum. Þeir eru
áreiðanlegir, vilja hafa reglu á hlutunum og vinna gjarnan með gögn
og skýrslur. Þeir vilja frekar vinna undir stjórn annarra eða þar
sem farið er eftir skýrum áætlunum en að stjórna öðrum sjálfir.
Unndirsvið starfsáhuga
Verk-
og tæknifræði
Valin
voru saman athafnir og störf sem eiga það sameiginlegt að fela í
sér störf sem falla undir verk- og tæknifræði. Þeir sem hafa áhuga á
þessu sviði starfa í ýmsum geirum s.s. við byggingaframkvæmdir vélar
eða rafmagnsþar sem hagnýta þarf þekkingu á tækni- og verkfræðum.
Náttúruvísindi
Kvarðinn samanstendur af störfum og athöfnum sem tengjast rannsóknum
á náttúrunni í víðum skilningi. Hann endurspeglar áhuga á að starfa
við rannsóknir, fræðistörf og hagnýtingu þekkingar á sviði
náttúrufræða og svokallaðra raunvísinda.
Heilbrigðis- og lífvísindi
Þessi
kvarði inniheldur athafnir og störf sem tengjast rannsóknum og
hagnýtingu á heilbrigðissviði og á sviði lífvísinda sem hefur verið
vaxandi fræðigrein undanfarin ár.
Stærðfræði
Þessi
kvarði lýsir áhuga á að starfa við stærðfræðileg viðfangsefni og
lausn þeirra á ýmsum sviðum (þar sem þess gerist þörf).
Raf-
og byggingargreinar
Þessi
kvarði inniheldur nokkurn fjölda atriða sem endurspegla fjölbreytt
svið iðnaðar sem tengjast fyrst og fremst mannvirkjagerð. Þeir sem
eru háir á þessum kvarða eru líklegir til að finna sig í störfum þar
sem unnið er með áþreifanlega hluti eins og byggingar og viðgerðir.
Vélar
og akstur
Þeir
sem fá hátt á þessum kvarða hafa gaman af að vinna við vélar,
viðgerðir þeirra, akstur og annað sem felur í sér notkun, hönnun og
viðgerðir á vélbúnaði og sviði málmsmíða ýmiskonar.
Sjávarútvegur
Ýmis
störf sem tengjast helstu frumvinnslugreinu þjóðarinnar falla í
þennan kvarða og lýsir áhuga á sjávarútvegi og þeim fjölbreyttu
störfum sem þar bjóðast til sjós og lands.
Tölvur
Þessi
kvarði endurspeglar áhuga á að vinna við tölvubúnað, hönnun í
tölvum, forritun og fræðilega nálgun að tölvutækni og notkun hennar.
Fjármál
Þeir
sem falla á þetta svið hafa áhuga á nokkuð breiðum vettvangi
fjármála og geta fundið störf víða, bæði í viðskiptalífinu og
fjarmálageiranum auk opinbera geirans sem sinnir fjársýslu af ýmsu
tagi.
Sala
Þessi
kvarði tengist einnig viðskiptum og þeir sem eru háir á honum hafa
áhuga á störfum sem þar sem reynt er að finna leiðir til að fá
neytendur til að kaupa vöru og þjónustu á ýmsum sviðum.
Eignaumsjón
Þetta
svið lýsir áhuga á störfum á nokkuð víðtæku sviði sem tengist umsjón
eigna, daglegu viðhaldi og öryggismálum. Þetta svið hefur einkenni
skipulags- og handverkssviðs í jafn miklum mæli.
Skrifstofustörf
Störf
sem falla á þetta svið fela í sér pappírsvinnu, flokkun, skráningu
og ritun ásamt móttöku og upplýsingagjöf hjá stofnunum og
fyrirtækjum á flestum sviðum atvinnulífs.
Þjónusta og afgreiðsla
Þessi
kvarði endurspeglar áhuga á að starfa við þjónustu t.d. í ferða- og
veitingageiranum og við afgreiðslu aðallega við viðskiptavini á
hinum almenna markaði.
Tíska
og hönnun
Þeir
sem eru háir á þessu sviði hafa áhuga á að bæta og fegra útlit
einstaklinga, hanna tískuvöru og vinna við fegrun og sköpun
ýmiskonar.
Kennsla
Þeir
sem eru háir á þessu sviði hafa áhuga á að starfa að uppeldi og
kennslu með börnum og unglingum . Þetta svið nær yfir störf sem fer
sífellt fjölgandi í nútímasamfélagi.
Heilbrigðisþjónusta
Annað
svið sem fellur undir þjónustugeirana eru heilbrigðismál. Þeir sem
falla á þetta svið hafa áhuga á að starfa á mjög svo víðfeðmu sviði
heilbrigðismála sem felur í sér störf sem krefjast bæði styttri og
lengri menntunar.
Íþróttir og heilsa
Þessi
kvarði endurspeglar áhuga á störfum sem finna má nokkuð víða í
samfélaginu en tengjast öll líkamsástandi eða iðkun heilbrigðra
lífshátta og heilsuræktar. Áhugi þeirra sem falla á þetta svið
beinist að störfum sem víða er að finna í okkar samfélagi og verða æ
fjölbreyttari og umfangsmeiri.
Björgun og löggæsla
Þeir
sem eru háir á þessu sviði hafa áhuga á að vinna við almenna
löggæslu og eftirlit, við rannsóknir á sakamálum og björgunarstörf
ýmiss konar sem oftast eru unnin í sjálfboðavinnu hérlendis en
teljast ekki til hefðbundinna launaðra starfsstétta.
Ræktun og búskapur
Þessi
kvarði samanstendur af athöfnum og störfum á sviði landbúnaðar,
garðyrkju og gróðurræktar (Þeir sem hafa áhuga á störfum á þessu
sviði una sér best úti í náttúrinni við nytjun hennar eða fegrun.
Sviðlistir
Athafnir og störf sem falla undir þær listgreinar sem kalla krefjast
þess að listamaðurinn stígi á svið voru teknar saman í einn kvarða.
Þetta svið nær yfir tónlist, leiklist og dans, þannig að þeir sem
eru háir á þessum kvarða hafa yfirleitt hug á að starfa eða taka
þátt í sýningum sem fela annaðhvort eða bæði í sér leikræna tjáningu
og tónlistarflutning.
Fjölmiðlun
Þeir
sem eru háir á þessu sviði gætu bæði haft áhuga á að búa til efni
fyrir fjölmiðla af ýmsu tagi og sjá um tæknilegan þátt útsendinga og
upptöku.
Sjónlistir
Þessi
kvarði samanstendur af athöfnum og störfum sem spanna nokkuð vítt
svið í listageiranum. Þeir sem eru háir á þessu sviði hafa áhuga á
að vinna við sköpun myndverka eða hönnun hluta.
Viðskipti og rekstur
Ef
einstaklingur er hár á þessum kvarða lýsir það áhuga á að hafa
frumkvæði og bera ábyrgð á rekstri fyrirtækis og starfa sem
athafnamaður eða -kona í viðskiptalífinu.
Opinber stjórnun
Þeir
sem eru háir á þessu undirsviði eru einnig athafnasamir en hafa
meiri áhuga á stjórnun og skipulagningu utan viðskiptageirans og þá
helst á sviðum sem tengjast opinberri stjórnsýslu og samfélagsmálum.
Hugvísindi
Þeir
sem eru háir á þessu sviði hafa áhgua á greinaum og störfum sem
tilheyra hugvísindum eins og þau eru skilgreind í háskólasamfélaginu
að mestu leyti. Þær eiga það sammerkt að vera grundaðar í
tungumálinu og fjalla um þau svið mannlegrar tilveru sem tilheyra
t.d. heimspeki, sagnfræði og bókmenntafræðum ásamt fleiri skyldum
greinum.
Félagsvísindi
Þetta
svið lýsir einnig áhuga á fræðastörfum og gerir kröfu um hæfni á
sviði ritunar og greiningar en viðfangsefnið afmarkar sviðið við
samfélagsleg málefni.
Ráðgjöf og meðferð
Þessi
kvarði endurspeglar áhuga einstaklinga á að vinna með fólki og
aðstoða við persónuleg og félagsleg vandamál. Þetta er svið sem
krefst nokkurrar menntunar og tengist töluvert félagsvísindum og
einnig heilbrigðisþjónustu að nokkru leyti.
Skapandi skrif
Þetta
er kvarði sem endurspeglar áhuga fólks á því að vinna með og tjá sig
í rituðu máli t.d. við ritun fagurbókmennta, frétta eða annars
efnis.
til baka
Hvernig gagnast áhugasviðsmat við leit að námi og störfum?
Eins og fram kom hér að framan er talið mikilvægt fyrir ánægju
fólks og árangur í starfi að það velji sér starfsvettvang sem
fellur að áhugasviði þess. Kenning Hollands kemur fyrst og
fremst skipulagi á áhugasvið nemenda og auðveldar þeim og
námsráðgjöfum að ræða um starfsáhuga og auka þannig
sjálfsþekkingu hans. Holland kom einnig fram með þá hugmynd að
flokka mætti vinnumarkaðinn og þau störf sem þar finnast á sama
hátt og áhugasvið fólks. Í Bandaríkjunum eru öll störf flokkuð
og kóðuð og þannig byggt á lýsingum á störfunum samkvæmt einu
til þriggja áhugasviða Hollands (t.d. F , VH og SAF. Hérlendis
hafa verið gefnar út handbækur með starfslýsingum sem notaðar
hafa verið í náms- og starfsráðgjöf en þrátt fyrir að
áhugakannanir sem meta áhugasvið Hollands hafi verið notaðar
hérlendis, hafa nemendur og aðrir sem eru að leita sér að
hentugum starfsvettvangi ekki haft aðgang að flokkuðum
starfslýsingum sem auðveldlega má para við niðurstöður úr slíkum
könnunum. Samhliða gerð áhugakönnunarinnar hefur því verið
ráðist í að flokka þær starfslýsingar sem til eru hérlendis
eftir áhugasviðum Hollands (sjá nánar Upplýsingar um störf
á www.bendill.is).
Þegar nemandi fær niðurstöðu úr áhugasviðsmatinu
getur hann byrjað á því að skoða starfslýsingar og aðrar
upplýsingar um þau störf sem falla að hans áhugasviði eða
áhugasviðum. Til dæmis gæti nemandi sem fær þá niðurstöðu að
áhugi hans fellur á skipulags- og athafnasvið (SA) farið í
gagnagrunn á netinu og kallað fram öll störf sem hafa verið
flokkuð í SA störf (t.d. endurskoðandi, ritari framkvæmdarstjóra
o.fl.), skoðað starfslýsingarnar fyrir störfin og í framhaldi af
því aflað sér fleiri upplýsinga um þessi störf og önnur af
svipuðu tagi ásamt námsleiðum. Sérstaklega er mikilvægt fyrir
nemendur á lokastigum grunnskólans og í framhaldsskóla að slík
leit fari fram undir handarjaðri námsráðgjafa eða annarra sem
þekkja til á þessu sviði.
til baka
Hvað standa kvarðarnir í Bendli 3 fyrir?
Hér er hægt að skoða lýsingu á kvörðunum
til baka
|