|
|
|
|
Bendill var
styrktur af markáætlun RANNÍS í upplýsingatækni og
umhverfisfræðum, starfsmenntaráði félagsmálaráðuneytisins og í
formi aðstöðu frá Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands og
Háskólanum í Illinois-CU þar sem höfundar hafa starfað eða eru
starfandi.
Margir komu að gerð Bendils á einn eða annan hátt. Vibeke Svala
Kristinsdóttir, Steinunn Harpa Jónsdóttir og Björg Sigríður
Hermannsdóttir voru starfsmenn verkefnisins í lengri eða skemmri
tíma á árunum 2004-2007. Ásdís Schram og Eyrún B. Valsdóttir sáu
um gerð atriða þegar verkefnið var á frumstigum og Svala
Jónsdóttir lektor við KHÍ hannaði lógo og endanlegt útlit vefs.
Leitað var til fagfólks sem starfar við náms- og starfsráðgjöf
Háskóla Íslands við vinnuna og var aðstoð þeirra og reynsla af
notkun áhugakannanna ómetanleg. Náms- og starfsráðgjafar sem
starfa í grunn- og framahaldsskólum tóku bæði þátt í mótun
Bendils þegar hann var enn á frumstigum og síðast en ekki síst
lögðu þau þróunar- og stöðlunarútgáfu könnunarinnar fyrir hátt í
4000 nemendur meðan á verkefninu stóð. Án þátttöku starfandi
náms- og starfsráðgjafa og nemenda hefði Bendill aldrei orðið að
veruleika. Námsmatsstofnun hefur tekið við Bendli og sér um
hýsingu og þjónustu við notendur.
Háskólaútgáfan gefur út handbók fyrir
notendur:
Bendill, rafræn áhugakönnunn: Þróun og notkun.
|
|
|
|